...Gleðilegt nýtt ár allir saman...

01. janúar 2009 klukkan 12:34

Það er ekki hægt að segja annað en að árið 2008 hafi verið mjög annasamt og skrítið, eiginlega leið þetta ár óhugnalega hratt. Ég ætla svona aðeins að stikla á þeim helstu atburðum.

Mars - Flutti aftur í bæinn af Miðnesheiði, og alla leiðina upp í Dúfnahóla skrítið það.

Mai - Fótbrotnaði illa á hné í byrjun mánaðarins var að keppa í skólafótbolta og hélt áfram að spila tvo leiki eftir að hafa brotnað (mér datt auðvitað ekki í hug að hafa brotnað) Enda kom það ekki í ljós fyrr en þremur vikum seinna. Ég fór því í gegnum lokaprófin mín hjá Keili á hækjum með rosalega bólgið hné og mikla verki, en náði samt öllu með stæl enda bráðgáfuð hehe.

Ágúst - Stendur þó mest upp úr því þá varð ég þrítug, útskrifaðist frá Háksólabrú Keilis. Og byrjaði í Háskóla Íslands fór í frábæran bekk, kynntist æðislegu fólki með frábæran húmor og eignaðist hana Guðbjörgu mína  hehe.

Sept - Fluttum aftur heim á Seljabrautina og mikið ofboðslega var gott að komast aftur heim.

Margt og mikið annað hefur samt gerst á þessu ári bæði sorglegt og gott, en lífið er bara svona við verðum að ganga í gegnum ýmislegt á lífsleiðinni.

Og ekki nenni ég að tala mikið um þetta bankahrun, finnst þessi múæsingur kominn út í alltof mikið rugl. Landið á bara eftir að breytast til hins verra með þessum mótmælendum sem ganga með klúta fyrir andlitið á sér svo þeir sjáist ekki og ráðast á fólk og hluti. Ég er meira segja viss um það að meiri hlutinn af þessum skríl veit ekki einu sinni hverju það er að mótmæla, það vill bara vera með læti og haga sér eins og hálfvitar. Það mun ekkert breytast við þessi mótmæli nema að auka ofbeldi meðal landsmanna. En núna vitið þið allavega mína skoðun á þessu máli.

Ég vona að árið 2009 verði gott, það verður gott ef við ákveðum það og horfum björtum augum á framtíðina. Ég reyni það allavega svona inn á milli slæmu dagana.

Bestur kveðjur.....

Jóhanna Lúvísa

Á jólunum er gleði og gaman fúmm fúmm fúmm...

10. desember 2008 klukkan 09:43

Jæja þá eru prófin búin Cool hversu ljúft getur það verið. Fór í síðasta prófið mitt í gær og eftir það skundaði allur bekkurinn niður á Caruso þar sem við borðuðum saman góðan mat og skiptumst á jólapökkum.
Ég veit annars ekkert hvernig mér gekk í þessum prófum, en vona þó heitt og innilega að ég nái þeim, nenni sko innilega ekki að fara læra fyrir upptökupróf þegar nýjir kúrsar eru byrjaðir.

En mikið rosalega er það ljúft að vera bara heima og gera ekki neitt, var nú búin að spá í að fá mér vinnu yfir jólin en þar sem það virðist nú ekki vera það auðveldasta í bænum var ákveðið að taka því rólega enda búin að vera mikil vinna á manni skólalega séð í allt haust.

En jæja ætla fara skella mér í slökunarnudd á mecca spa ha ha nota útskriftagjöfina frá systkinum mínum....mmm bara ljúft sko :)

Jóhanna Lúvísa

Hvar á ég að byrja....

26. nóvember 2008 klukkan 22:27
Vá hvað ég er ekki að meika prófalærdóm, veit ekki einu sinni hvar ég á að byrja Cry Væri ósköp gott að geta bara farið að sofa á eftir og vakna aftur 9.desember og bara búin með prófin og hafa náð þeim öllum í þokkabót. En svo gott verður það víst ekki ég verð bara að treysta á gáfurnar mínar í þessu tilviki og tækla þetta.

Við stelpurnar tókum okkur til síðustu helgi og skreyttum allt svo það er orðið voðalega jóló hérna, það var annað hvort þessi helgi eða bíða fram yfir próf og stelpnanna vegna var nú ekki hægt að bíða fram yfir próf. Já og mín vegna varla heldur elska jólin er alveg farin að hlusta á jólalögin daglega og sötra jólaöl með, væri löngu búin að kaupa mér nóa konfekt ef það væri ekki svona andskoti dýrt.

Jesús minn hvað ég er orðin þreytt á þessu þjóðfélagi og mótmælum hvar á þetta eftir að enda, held að sumt fólk viti ekki einu sinni hverju það er að mótmæla bara svo gaman að fá að kasta eggjum djösss rugl.
Jæja ætla fara reyna læra fyrir próf
Jóhanna Lúvísa

Hvað heldur bubbi að hann sé !

23. október 2008 klukkan 09:18

Væri ekki spurning að gera eitthvað annað við þessa peninga, enn að borga rafmagn þrifa og annað eins kjaftæði fyrir bubba tónleika .
http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2008/10/23/bubbi_vill_somu_medferd_og_bjork_og_sigur_ros/
Sjá meðfylgjandi link.

En þar sem ég kann greinilega ekki að setja inn link þá þurfið þið bara að kíkja á mbl sjálf :)

Jóhanna Lúvísa

Þá er allt farið til fjandans !

06. október 2008 klukkan 22:36
Jæja ef að þjóðfélagið er ekki í rassagati þá veit ég ekki hvað Ullandi þvílíkur óþefur af þessari ríkisstjórn virðist ekki vera hægt að treysta nokkrum manni.
En nóg um það þarf ekki að hafa áhyggjur af millunum mínum mega taka skuldirnar mínar frekar. Ég byrjaði í vettvangsnámi í dag á leikskóla í breiðholti svaka gaman og er ég mjög sátt. Maður er bara frekar þreyttur eftir daginn enda langt síðan maður hefur unnið eitthvað. Reyndar var ég ekkert að vinna bara horfa á og fylgjast með svo mun ég vinna verkefni út frá því.

Afhverju í andskotanum er nammi orðið svona dýrt liggur við að það verði ódýrara fyrir mig að byrja bara að reykja aftur Tala af sér eða kannski bara hætta borða nammi það er spurning, en ég veit það bara að þegar sá dagur kemur þegar ég mun missa nammilöngunina þá verður það daginn sem ég dey og ekki deginum fyrr Gráta

Jæja farin að læra ....
Jóhanna Lúvísa

Já sæll...

02. október 2008 klukkan 21:22
Eigum við eitthvað að ræða þetta, það er 2.október það kyngir niður snjó hérna. Komin jólasnjór á trén Fýldur hvað er að gerast og aumingja fellihýsið situr ennþá úti, erum ekki ennþá búin að finna ódýrt húsnæði undir það í þessari kreppu, svo ef þið vitið um eitthvað endilega látið mig vita.

Fór í próf í dag í þroskasálfræði próf sem gildir ekkert bara gert fyrir okkur til að sjá hvar við stöndum og svona til að sjá hvernig próf lítur út hjá henni. Sjétt mér gekk ekki vel enda var ég svo sem ekkert að reyna læra mikið fyrir þetta, en maður sér núna á hvað maður þarf að leggja áherslu á og í hverju maður þarf að bæta sig og það er gott.

Hvar á þetta eftir að enda allt saman er þjóðin að fara til andskotans ég veit allavega að við erum að fara til andskotans og það er ekkert annað hægt að gera en að loka augunum og sjá hvað gerist eða bíða eftir að vera borin út.
Ég veit allavega að jólagjafaóskirnar í ár verða eitthvað sem bráðvantar en ekki bara eitthvað sem einhverjum langar í bara til að langa.

Og jeminn eini hvað ég er feginn að vera ekki í þessum viðskipta bransa úff púff þegar allt er að fara forgörðum við getum allavega verið viss um að alltaf er þörf á fólki til að sjá um börn haha Ullandi
Talandi um börn ég fór í foreldraviðtal hjá Maríu um daginn og auðvitað bara það besta hjá þessum engli, rosalega góð, rosalega metnaðarfull þarf ekki að hafa áhyggjur af neinu og ég veit ekki hvað og hvað vá hvað er gott að fá að heyra svona, en ekki eins og mamma mín "sko hún Jóhanna kjaftar alltof mikið í tímum" enda er ég yfirleitt mjög málglöð svona ef ég er ekki of feimin. En allavega stóri engillinn stendur sig bara eins og hetja sem er bara gott. Núna er hún komin á fullt í handboltann líka með fótboltanum og fýlar sig vel enda sjálfsagt ekki langt að sækja handboltataktana.

Það er djamm um helgina fyrsta bekkjarpartý ársins hlakka mikið til enda lítur úr fyrir að það verði góð mæting svo það verður bara stuð enda frábær bekkur í alla staði.
En jæja farin að skilgreina hugtök og skrifa leiðarbók ble ble....
Jóhanna Lúvísa

Það er bara svona...

23. september 2008 klukkan 21:34
Þó að mér hafi alla tíð fundist gaman að syngja þá myndi ég ekki fara á MammaMia sýninguna syndu með Öskrandi Sjétt fékk bara aulahroll þegar var verið að sýna úr þessu í sjónvarpinu í gær, sorry fannst þetta BARA hallærislegt. En kannski er það bara ég sem er svona halló hver veit.

Hef svo mikið að segja í viðbót bara nenni ekki að skrifa það........later
Jóhanna Lúvísa

Stuð og aftur stuð

14. september 2008 klukkan 09:15
Jæja ég hafði nú ætlað mér að verða mun duglegri við bloggið, það er reyndar búið að vera ofboðslega mikið að gera.
Við sem sagt fluttum inn aftur á Seljabrautina 1. sept fengum reyndar íbúðina ekkert agalega skemmtilega til baka ýmsar smá skemmdir og ofanálagt var hún ókeðslega skítug Öskrandi smá skemmdirnar verða lagaðar á þeirra kosntað svo það verður í lagi.
Þannig að síðustu vikur höfum við bara verið að koma okkur fyrir og svo er auðvitað alveg nóg að gera í skólanum.

Skólinn er æði og bekkurinn frábær ég er í þremur fögum, leikskólinn, talað mál og ritað og svo þroska og námssálarfræði sem er frábært fag svo ótrúlega áhugavert og fræðandi reyndar mikið lesefni en þetta er jú auðvitað háskólanám.

Á föstudaginn var svo fyrsta skóladjammið ferð á laugarvatn sem er víst árlegur viðburður mættum við upp í skóla um þrjú á föstudag þar sem byrjað var að hella í sig smá áfengi svo skelltum við okkur í rútur og lá leiðin austur fyrir fjall. Íþróttanemar tóku á móti okkur þegar til laugarvatns var komið og hélt stuðið áfram fram eftir kvöldi og endaði svo með balli í Úthlíð.

Ég mundi það svo þegar ég vaknaði daginn eftir afhverju það væri svona langt síðan ég hefði fengið mér í glas síðast Gráta það voru sem sagt mikil faðmlög við klósettsetuna daginn eftir  sjétt hvað mér leið ókeðslega illa.

Við fengum svo gest um helgina er Stefán bróðir kom og var hjá okkur, gott að hafa hann enda svo afskaplega ljúfur og góður strákur, og gaman að kynnast honum aðeins meira.

Jæja farin að hugsa um börnin mín....
Jóhanna Lúvísa

Fyrsti skóladagurinn í dag í Kennó..

25. ágúst 2008 klukkan 22:18
Jæja þá er fyrsti dagurinn búinn og hann var alveg meiriháttar, fengum góða kynningu út um allan skóla auk þess að vera í hópeflisleikjum bara gaman að því. Líst rosalega vel á þennan hóp og hlakka til að kynnast honum betur. Mér líst bara rosalega vel á þetta allt saman og hlakkar mikið til að byrja að alvöru. En þessi vika fer að mestu í kynningar á öllu saman.
Á Sunnudaginn er svo komið að því ....við flytjum aftur heim þessi dagur verður sjálfsagt mjög strembin þar sem ég mun auðvitað þurfa þrífa íbúðina vel og vandlega áður en við flytjum inn svo þarf að flytja allt úr geymslunni og úr Dúfnahólum og koma sér fyrir ...allt á sunnudeginum ég segi bara úffffffff.

Jæja farin að sofa er búin á því eftir þennan fyrsta skóladag í stóra fólks skólanum Hlæjandi
Jóhanna Lúvísa

Spenna..og aldur...

19. ágúst 2008 klukkan 11:39
Það er ekki laust við að það sé komin smá spenningur í mig, hlakka ofboðslega mikið til að byrja í skólanum en auðvitað er smá stress líka. Eftir tvær vikur verð ég flutt heim til mín aftur eftir árs fjarveru og byrjuð í háskóla, miklar breytingar á einu ári ekki satt.
Annars finnst mér alltaf jafn ótrúlegt hvað tíminn flýgur hratt áfram Dominos auglýsir um þessar mundir 15 ára afmælistilboð úff fokk það eru heil fimmtán ár síðan þeir byrjuðu hér á landi. En get svoleiðis svarið það að ég hélt það væri miklu syttra síðan ég var 15 ára gömul að smakka Dominos í fyrsta skipti, finnst bara eins og það hafi verið í gær.
Ég fór í bílabíó með Stínu og Ásu Sóley systur hennar og þar voru seldar Dominos pizzur, fannst þær ekkert spes og þær hafa bara versnað ef eitthvað er.

Lenti einmitt í hræðilegu atviki í sumar lá við að ég keyrði á bílinn fyrir framan mig mér brá svo. Í útvarpinu hljómaði lag sem ég dýrkaði á sínum tíma fannst það æði og í minningunni fannst mér ekki svo ýkja langt síðan þetta lag hafði verið vinsælt......eða þangað til að útvarpskallinn ropaði því út úr sér að þetta hefði verði vinsælasta lagið eitt sumar fyrir heilum sautján árum síðan Hissa sagði hann virkilega 17 Gráta Það var þá sem ég áttaði mig virkilega á því að ég væri ekki tvítug lengur.
Jæja farin að snýta mér áður en ég kafna úr kvefi hérna fyrir framan tölvuna.
Jóhanna Lúvísa

Prófíll

  • Nafn: Jóhanna Lúvísa
  • Staður: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð

Auglýsing

Leit

Klukkan

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...